Stærri vefsíða hentar meðalstórum fyrirtækjum sem þurfa að deila aðeins meiri upplýsingum en það helsta á forsíðu og um okkur.
Vefsíðan er skalanleg á öllum skjástærðum og uppfyllir helstu kröfur um mörkun. Eina sem þú þarft að gera er að senda okkur allt efni, myndir, texta, litapallettu og logo. Við spyrjum ykkur nokkrar spurningar til þess að afla okkur upplýsinga um hvers konar síðu þið óskið eftir og sendum ykkur uppkast um leið og síðan er tilbúin. Í kjölfarið fáið þið eitt skipti til þess að fara yfir hönnunina, laga texta og myndir og koma með athugasemdir. Þegar allar breytingar eru komnar inn og þið eruð sátt, þá fer vefsíðan í loftið.
Ath. að frekari þjónusta og viðbætur kosta aukalega, sjá hér fyrir neðan.
Kostar aukalega:
- Fleiri yfirferðir
- Viðbætur t.d. bókunarvélar eða vefverslun
- Hýsing
- Viðhaldsþjónusta
Þá má hafa samband við okkur á hallo@lupina.io fyrir frekari upplýsingar.
Innifalið
Vefsíða allt að 5 síður
Skalanleg á öllum skjástærðum
Mörkun, litir, letur osfr.
Einföld SEO vinna
Yfirfara hönnun 3x
Snögg 4-6 vikna skil
Eftir að vefsíðan er farin í loftið takið þið við mánaðargjaldinu sem fylgir hýsingunni. Hægt er að óska eftir að koma í áskrift að vefumsjón.