Sýnileiki
Það skiptir ekki máli hvað vefsíðan er falleg ef enginn finnur hana.
Við hjálpum vefsíðum að finnast á réttum stöðum — í Google, í AI-leit, í kortum, í efni og í mælingum sem sýna hvað virkar.
Hvað er sýnileiki?
Sýnileiki er ekki bara SEO. Hann snýst um að vefurinn, efnið og fyrirtækjaupplýsingarnar séu skiljanlegar fyrir leitarvélar, AI-kerfi og fólkið sem er að leita að lausninni þinni.
Við styrkjum grunninn svo síðan birtist betur þegar fólk leitar að þjónustunni þinni.
AI leit
Við mótum efni og uppbyggingu svo AI-svör og ný leitarkerfi skilji hvað þú gerir.
Google Business
Við stillum staðbundnar upplýsingar, þjónustu og traustmerki svo fólk finni þig í kortum og nærleitum.
Analytics
Við tengjum mælingar við raunveruleg markmið svo þú sjáir hvað skilar heimsóknum og fyrirspurnum.
Við byggjum sýnileika sem fólk og leitarvélar skilja.
Markmiðið er ekki bara meiri umferð, heldur rétta umferðin: fólk sem er að leita að því sem þú býður upp á.
Skýr forgangsröðun áður en farið er í aðgerðir.
Verkefni sem þurfa að finnast
Nokkur dæmi um verkefni þar sem skýr uppbygging, gott efni og tæknileg grunnvinna styðja sýnileika til lengri tíma.







