Lúpína vefstofa
hallo@lupina.is
690-8812
Gildistaka: 20. mars 2026
Vefsíða: www.lupina.is
Rekstraraðili: Lúpína ehf.
Almenn ákvæði
Þessir skilmálar gilda um alla notkun á þjónustu Lúpínu, þar á meðal vefsíðugerð, hönnun, vefumsjón og tengda þjónustu.
Með því að nýta þjónustu Lúpínu samþykkir viðskiptavinur þessa skilmála.
Þjónusta
Lúpína býður upp á meðal annars:
Vefsíðugerð
Vefhönnun og þróun á vefsíðum
Uppsetningu og viðhald á vefsíðum
Hýsingu
Vefumsjón og tæknilega þjónustu
Ráðgjöf tengda stafrænum lausnum
Nákvæmt umfang þjónustu er skilgreint í tilboði eða samningi hverju sinni.
Verð og greiðslur
Öll verð eru gefin upp án VSK eða eftir því sem við á í samtölum hvort sem er í síma eða póstsamtölum, nema annað sé tekið fram.
Greiðsluskilmálar eru skilgreindir í tilboði eða reikningi.
Lúpína áskilur sér rétt til að stöðva þjónustu ef greiðsla berst ekki á réttum tíma.
Verð á áskriftum getur breyst skv. nýjustu verðskrá.
Verkefnavinna og afhending
Verkefni hefjast þegar samþykkt tilboð liggur fyrir.
Afhendingartími getur breyst ef:
viðskiptavinur skilar ekki efni á réttum tíma
umfang verkefnis breytist
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að yfirfara og samþykkja vinnu áður en verkefni telst lokið.
Ábyrgð viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber ábyrgð á:
Að veita rétt og löglegt efni (texta, myndir o.fl.)
Að tryggja að hann hafi rétt til notkunar á öllu efni
Að halda utan um aðgangsupplýsingar (ef við á)
Höfundaréttur og eignarhald
Lúpína á höfundarrétt að allri hönnun og kóða þar til full greiðsla hefur borist.
Að greiðslu lokinni fær viðskiptavinur notkunarrétt að lokaafurð.
Lúpína áskilur sér rétt til að sýna verkefni í eigin markaðsefni nema um annað sé samið.
Hýsing og rekstur
Ef Lúpína sér um hýsingu:
Leitast er við að tryggja stöðugan rekstur en 100% uppitími er ekki tryggður
Lúpína ber ekki ábyrgð á tjóni vegna niðritíma, árása eða tæknilegra bilana
Takmörkun ábyrgðar
Lúpína ber ekki ábyrgð á:
Beinu eða óbeinu tjóni vegna notkunar á vefsíðu
Tekjutapi eða rekstrartapi
Vandamálum sem stafa af þriðja aðila (t.d. hýsing, viðbætur, bókunarvél, Meta, Google o.fl.)
Breytingar á skilmálum
Lúpína getur uppfært skilmála þessa án fyrirvara. Nýjasta útgáfa er alltaf aðgengileg á vefsíðunni.
Lög og varnarþing
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Komi upp ágreiningur skal hann tekinn fyrir íslenskum dómstólum.
Samskipti
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband:
netfang: hallo@lupina.is
sími: 690 8812

