Yfirlit & innihald
Þjónustan okkar
Vefsíðugerð

Við sjáum um hönnun og uppsetningu á vefsíðum ásamt tengingum við alla helstu þriðju aðila. Það geta verið tengingar við Google Analytics, Meta pixel, Bókun, Go Do eða annað. Einnig sjáum við um SEO leitarvélabestun og sjáum til þess að vefsíðan þín sé sýnileg á netinu. Við pössum einnig upp á að vefsíðan þín haldi hraða.
Hönnun á vefsíðu
Uppsetning á vefsíðu
Tengingar við þriðja aðila
SEO leitarvélabestun
Vefhönnun

Með bakgrunn og þekkingu á hönnun og notendaupplifun leggjum við áherslu á að virkni síðunnar skili sér með góðu leiðarkerfi, skipulagi og virkni. Við viljum halda notendunum glöðum.
Notendaupplifun
Skipulag efnis
Leiðarkerfi
Virkni
Mörkun

Sé kominn tími til að breyta útliti vörumerkis sjáum við um að hanna lógó, setja upp vörumerkjastefnu, sjónræna ímynd, liti, letur og reglur vörumerkis.
Lógó
Litir & letur
Vörumerkjastefna
Sjónræn ímynd
Reglur vörumerkis
Hýsing & þjónusta

Við skil á vefsíðu sjáum við um að hýsa hana og halda henni uppfærðri og öruggri. Við erum með SSL skírteini, öryggisvöktun, vírusvarnir og dagleg öryggisafrit. Við bjóðum upp á ráðgjöf og þjónustu við vefsíðuna eftir að hún er farin í loftið, svo þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af vefsíðunni ykkar.
Hýsing
SSL skírteini
Vírusvarnir
Dagleg öryggisafrit
Öryggisvöktun
Ráðgjöf & þjónusta
Markaðsefni

Við sjáum um uppsetningu á stafrænu og prentuðu markaðsefni s.s. auglýsingum, undirskriftum í póstum, hönnun á stafrænum póstum, bæklingum, stafrænu markaðsefni og fleira.
Stafrænar & prentaðar auglýsingar
Bæklingar, nafnspjöld o.fl.
Undirskriftir í póstum
Hönnun á stafrænum póstum
Spurningar?
Hvað kostar að láta gera vefsíðu?
Verðið fer eftir umfangi verkefnisins, fjölda síðna og sérlausnum. Við leggjum áherslu á að finna lausn sem hentar þínu fyrirtæki og fjárhagsramma. Þú færð alltaf skýra verðáætlun áður en vinna hefst.





